september 25, 2006

 

Husband back

jæja fer að styttast í að ég endurheimti eiginmaninn, minn eigin maður... Kemur vonandi í vikunni. Farið að verða ansi einmannalegt að hanga einn í holunni í minnstu borg í Evrópu, þar sem allt er lokað frá 14:00 á laugardögum til mánudags, jú nema 3 rónabúllur sem sýna fótbolta... Og enginn súfista bóka kaffihúsa búð. Vegna fráveru eiginmanns, eru rauðar flöskur tíðir gestir á heimilinu, einn með þeim rauðu, dáltið sorglegt, get samt réttlætt þetta fyrir sjálfum mér að ég sé í listnámi og þarafleiðandi bóheim, og þeir drekka... svo er þetta náttúrulega líka Danmörk, cheep spirits... En plana höfuðborgar ferð á næstunni, þar er víst fólk og líf.

Comments:
Það eru ekki bara bóhemar sem drekka í Danaveldi, það gera það allir...alltaf! Nema ég að vísu þessa dagana, er í uppreisn og lifrarhvíld, don't ask.

Vona að eiginmaðuinn endurheimtist heill á geðsmunum sem fyrst :-) Og þegar þið skötuhjú drattist svo í höfuðstaðinn get ég boðið gistingu og leiðsögn um borgina og rónabúllurnar ;)
 
Hvenar á svo að kíkja í höfuðborgina og vera villtur?? ;) Hvað er annars að frétta af blackos pungos.... er hann bara að koma núna í vikunni???
 
Verið velkomin á dansleik í boði Samtakanna '78 og DJ Bling!

Takið frá laugardaginn 14. október fyrir glimrandi stuð. All that is in and all that was in back in the day!

Put on your red shoes and dance ...

Nánari upplýsingar auglýstar síðar, en munið daginn!

Kiss kiss bang bang :*
 
Skrifa ummæli



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?